Örvitinn

Þjónusta Securitas

Þeir sem fá mann heim til sín til að skipta um rafhlöðu í reykskynjara eru annað hvort afskaplega efnaðir, afskaplega óhandlagnir eða með öryggiskerfi frá Securitas (samkeppnisaðilar eru eflaust með svipaða þjónustu).

Skaust heim áðan til að taka á móti manni sem skipti einmitt um rafhlöðu í reykskynjara.

Áður hefur starfsmaður Securitas komið heim til okkar þegar rafmagni sló út meðan við vorum stödd í bústað. Sá skipti um öryggi í leiðinni.

Þannig að þó mér finnist helvíti blóðugt að þurfa vera með öryggiskerfi útaf úrkynjuðum ribböldum sem rupla og ræna fylgja því aðrir kostir en vörn gegn innbrotum.

hrós
Athugasemdir

Þóroddur Jónsson - 24/03/11 10:07 #

Uppsögn samnings eftir samningstíma vegna atvinnuleysis. Kv. Þóroddur

Matti - 24/03/11 10:10 #

Ég skil ekki!

Kristján Hauksson - 27/04/13 20:01 #

27.04.2013. Ég segi upp samningi mínum við Securitas á öryggiskerfi ykkar hjá mér frá og með deginum í dag. Kveðja Kristján Hauksson.

Matti - 27/04/13 22:13 #

Þetta er afskaplega skemmtilegt!