Silfrið...
Athugasemdir í beinni:
Fyrsti hluti
- Lán með veði í fasteign er ekki séríslenskt fyrirbæri.
- Öll yfirstjórn banka frá útlöndum! Og hvað, hafa þessa stjórnendur í einangrun í sér íbúðahverfum - koma í veg fyrir að þeir tengist íslendingum?
- Gjaldþrot er ekki dauðadómur.
- Það er ýmislegt verra en að hafa fjárhagsáhyggjur.
- Egill með afskriftalógík.
- Hvað munu íslendingar aldrei borga?
- Egill endurtekur afskriftalógík.
- Sum fyrirtæki þurfa ekkert að lifa. Mörg innflutningsfyrirtæki eiga að fara á hausinn.
- Það skiptir engu máli hverjir verða í bönkunum, það verður aldrei traust eins og stemmingin er í þjóðfélaginu. Breytti einhverju að fá erlendan seðlabankastjóra?
- Góður punktur með aukningu á útgjöldum ríkis undanfarin ár.
- Jón Daníelsson er jákvæður!
- Góð gagnrýni á gjaldeyrishöftin.
- Ágæt upphitun fyrir Stiglitz að fá gagnrýni á Alþjóða gjaldeyrissjóðinn.
Annar hluti - orkumál
- Flott að fá dálítið annan vinkil á umræðuna um HS Orku.
- Er vandamál að útlendingar fjárfesti í orkufyrirtækjum eða bara ef þeir geta grætt á því?
- Hverjir eru kröfuhafar HS Orku?
- Hvaða mælikvarði er á rekstur orkufyrirtækja? Er það betri rekstur á orkufyrirtæki ef útlendingur græðir með því að hækka orkuverð til íslendinga?
- Ef útlendingum mistekst að snúa við rekstri HS Orku eru engin almennileg veð fyrir lánunum sem þeir fá til að kaupa fyrirtækið.
- Af hverju lét hann þremenningana sitja áfram í þessum hluta? Fáránlegt.
Þriðji hluti - Stiglitz
- Ég las Hnattvæðinguna og andstæðinga hennar fyrir nokkru. Frábær bók.
- AGS að gera betri hluti hér en í öðrum löndum! Jakobína Ingunn verður brjáluð. Stiglitz er landráðamaður! "Reasonable".
- Vextir og verðbólga. Raunvextir :-) Marinó og Tryggvi Þór (ásamt öðrum) verða brjálaðir!
- Hve hratt á að draga úr fjárlagahalla?
- Ekki horfa bara á skuldir - heldur einnig fjárfestingar. Eignir á móti skuldum.
- Vannýtum auðlindir, þar með talið fólk, atvinnuleysi.
- Egill er ekki ánægður með hvað Stiglitz er blíður við AGS.
- Megum ekki skera of mikið niður.
- Fjárfestar koma ekki ef efnahagurinn er veikur. Því þarf að einblína fyrst á efnahaginn og svo þarf að skoða skuldir, afskriftir og eignahald.
- Afskrifa skuldir einstaklinga - "á réttan hátt".
- Samfélagið græddi líka á fjármálageiranum á tímabili.
- Icesave. "Að þjóðnýta tapið". Hér var bara horft á innistæðueigendur. Við höfum vissa ábyrgð. En Bretar bera líka ábyrgð.
- AGS sem innheimtustofnun.
- Hræðslustjórnun. Ekki halda að fjárfestingar stoppi algjörlega þó við getum ekki borgað. Búið að ýkja hætturnar en það verða samt afleiðingar.
- Gjaldeyrishöft eru ekki alslæm - setja skatta á útflutning fjármagns. Væri gaman að sjá hann rökræða við Jón Daníelsson um þetta.
- Krónan. Sveigjanleiki er nauðsynlegur fyrir lítil hagkerfi. Hvað segja evrusinnar? Hvað með verðbólguna sem fylgir. Ekkert er ókeypis. Skoða kostina og gallana. Evran myndi ekki virka fyrir okkur.
- Við viljum nýta auðlindir, lágmarka atvinnuleysi og þar sem krónan sveiflast hjálpar hún við að halda þeim stöðugleika.
- AGS lánið til að verja krónuna gæti verið mistök. Við viljum ekki of miklar sveiflur, sem eru rök fyrir höftum. Höfum ýmsar aðrar (óhefðbundnar) leiðir til að verja krónuna.
- Ísland (ekki alveg) saklaust fórnarlamb frjálshyggjukreddu. Stiglitz æltar að hitta ráðamenn en mér sýnist hann ekki nenna að gerast ráðgjafi.
- Hvaða skuldurum á að hjálpa? Mismunandi staða skuldara. Erfitt að leysa úr því. Sumir skuldsettu sig of mikið, aðrir ekki neitt. Þeir sem fengu "há lán til að kaupa stór hús".
- Kreppan er ekki á enda. Bandaríkin ekki enn komin úr kreppunni, atvinnuleysi mikið þar. Fyrst vandinn er ekki enn leystur í Bandaríkjunum er heimsvandinn enn óleystur.
- Við höfum einfaldlega ekki lagað regluverkið í kringum fjármálakerfin. Fjármálaheimurinn virðist fá að starfa áfram á sama hátt og áður. Bónusarnir í fjármálaheiminum. "Markaðurinn verður að fá að ráða" mantran. Ríkisstuðning verður að fylgja eftirlit.
- GDP - þjóðarframleiðsla er verulega gallaður mælikvarði á lífsgæði þjóða.
- Af hverju lærum við ekkert af sögunni?
Stiglitz var góður. Maðurinn er greinilega afar fróður um þessi mál og á auðvelt með að skýra þau fyrir almenningi. Hann sagði ekki endilega það sem fólk vill heyra. Ég gæti trúað því að margir hafi orðið fyrir dálitlum vonbrigðum. Hann mælti t.d. ekki með almennum niðurskurði krafna. Ég spái því þó að flestir muni finna eitthvað til að eigna sér málflutning hans.
Athugasemdir
hildigunnur - 06/09/09 14:49 #
Takk fyrir þetta.