Örvitinn

Gleymdi foreldrafundi

Mér tókst að steingleyma námskynningu í bekknum hennar Ingu Maríu í morgun. Gyða minnti mig á þetta í gærkvöldi en ég var ekki með rænu í morgun.

Skutlaði stelpunum í skólann en fyrst þurftum við að leita að húslyklunum þeirra út um allt hús. Fundum þá ekki.

Það getur verið óskaplegt vesen að koma sér úr húsi á morgnana.

dagbók
Athugasemdir

Lissy - 16/09/09 11:20 #

The other day, I looked and looked for my car keys, finally just grabbed the spare set, and then as I sat down to start my car, realized my car keys were in my jean pocket.

Matti - 16/09/09 11:22 #

Ég er líka viss um að Gyða finnur lyklana um leið og hún kemur heim :-)

hildigunnur - 16/09/09 13:14 #

Þekki þetta. Hef reyndar ekki gleymt námskynningu en fór ekki með litla gutta á skólasetningu, þangað hafa greinilega allir hinir foreldrarnir mætt því nýi kennarinn hans hringdi alveg steinhissa í mig þar sem ég var ekki á staðnum.

Tek fram að ekkert af hinum krökkunum í bekknum hans á eldri systkini - en Finnur á tvö. Slaknar á manni við þriðja :P