Örvitinn

Rammstein í kláminu

Ég efast um að nýjasta myndband Rammstein verði sýnt í Ríkissjónvarpinu á næstunni. Ath, myndbandið er hvorki fyrir börn né teprur. Klámfíklar neyðast til að horfa á myndbandið til enda.

Lagið er fyrst og fremst fyndið. "You have a pussy, I have a dick-a."

via reddit

klám
Athugasemdir

Arnar - 18/09/09 11:51 #

"You have a pussy, I have a dick-a"

Gleymdir næstu setningu:

"So whats the problem". :)

Annars skamm, átt ekki að vera að láta mann horfa á svona klám í vinnunni (eins og maður hafi haft eitthvað val..).

Jón Magnús - 18/09/09 11:55 #

Ef það var vandamál að sýna Sigurrósarmyndbandið með nakta fólkinu þá held ég að þetta verð ekki mikið sýnt nema censor-að í tætlur.

Mummi - 18/09/09 12:39 #

Jæja, föstudags-morgun-skammturinn af klámi kominn. Hvað býðurðu upp á eftir hádegi? ;)

Eva - 18/09/09 12:42 #

Efast nú um að myndbandið verði sýnt í nokkru landi, þ.e. ríkissjónvarpi:) Mér finnst nú samt skrýtið miðað við efni myndbandsins að ég tók nú bara mest eftir því hvað mér þótti lagið leiðinlegt:)

Matti - 18/09/09 13:00 #

Já, þetta lag er frekar asnalegt :-)

Mummi - 18/09/09 14:00 #

Lag? Hvaða lag?

Ekki reyna að segja mér að þið séuð í hópnum sem horfir á klám vegna söguþráðarins? Kaupið Rapport fyrir greinarnar?

Matti - 18/09/09 14:01 #

Ég hlustaði á lagið fyrstu tvær mínúturnar og velti því fyrir mér hvaða pempíur það væru sem kölluðu þetta klám :-)

Eva - 18/09/09 15:27 #

Ég hlustaði einmitt á lagið fyrstu mínúturnar og velti því fyrir mér hvað væri nú að gerast með Matta úr því að hann kallaði ÞETTA klám:) Nei, kannski er ég orðin svona ónæm fyrir klámi yfir höfuð að ég í alvöru pældi meira í þessu agalega leiðinlega lagi en myndbandinu:)

Siggi Óla - 18/09/09 20:21 #

Getum allavega sagt að lagið sem er vægast sagt ömurlegt hafi eyðilegt myndbandið...og myndbandið var raunar hálfömurlegt líka svona í samhengi við lagið.