Örvitinn

Sjö á níu dögum

Ég er ansi tæpur í fótum eftir boltann í dag, sjöunda tímann á níu dögum. Tognaði örlítið í læri á hægri og er frekar stífur í kálfa. Sleppi boltanum næstu tvo daga. Spurning um að reyna að drulla sér í ræktina í staðin. Kemur í ljós hvort ég verð orðinn sæmilegur fyrir laugardagsboltann.

boltinn heilsa
Athugasemdir

Bragi - 23/09/09 15:28 #

Eins gott að þú mætir á laugardaginn, annars tækla ég þig eins og Egill fékk að finna fyrir.

Matti - 23/09/09 16:24 #

Ég var svo upptekinn við að elta boltann að ég missti af þessari tæklingu á laugardag. Þegar ég leit við sá ég bara að þið voruð í einhverjum ástaratlotum á gólfinu :-)