Örvitinn

Framsóknar og vogunarsjóðir

Hvort ætli það sé verra fyrir Framsóknarflokkinn að vera tengdir við vogunarsjóði eða vogunarsjóði að vera tengdir við Framsókn? Hvort er þessi "leki" árás á Framsóknarflokkinn eða vogunarsjóði? Nógu slæmt orð var á vogunarsjóðum fyrir. Og Framsókn svosem líka.

Þetta þarf að fá á hreint. Ég veit nefnilega að ég á að froðufella af bræði en átta mig ekki á því hvert ég á að beini reiðinni.

pólitík
Athugasemdir

Arnold - 11/10/09 18:44 #

Ég fylgist orðið svo lítið með. Hvað er í gangi þarna og hvaða fréttir eru þetta?

Tryggvi R. Jónsson - 11/10/09 19:05 #

Framsókn er pottþétt að koma illu orði á vogunarsjóðina.

Matti - 11/10/09 19:59 #

Arnold, þetta snýst um að þegar framsóknarmennirnir heimsóttu Noreg voru með í för gaurar á vegum einhver vogunarsjóðs.

Arnold - 11/10/09 20:03 #

Ok það hljómar töff :) Þetta eru alvöru gangsterar þessir nýframsóknarmenn. Ætla greinilega ekki að verða eftirbátar sumra þeirra eldri :)