Örvitinn

Á maður að níðast?

Hvað segið þið, ætti ég að setja skipta myndinni minni út fyrir aðra í þessari moggabloggfærslu þar sem myndin mín er ekki bara notuð heldur er vísað á hana beint af vefþjóninum mínum? Hafið þið einhverjar hugmyndir, ég er svo djöfull andlaus. Gæti sett inn saklausa auglýsingu eða einhvern sora - en er ekki í skapi til að vera andstyggilegur í dag :-)

Ýmislegt
Athugasemdir

Matti - 12/10/09 11:08 #

Úff, rottukássan er ekki geðsleg.

Björn Friðgeir - 12/10/09 11:17 #

Settu bara inn einhverja flotta landslagsmynd :) Þá tekur hún eftir þessu án þess að verða of reið og kenna þér um það sem er henni að kenna.

Matti - 12/10/09 11:18 #

Þessi mynd er skárri en ég átti von á :-)

Ásgeir - 12/10/09 11:20 #

Ég legg til Tubgirl eða Goatse.cx.

Einar K. - 12/10/09 11:28 #

Væri ekki helber snilld að þú settir þessa fínu mynd af þér í staðinn: http://www.gmaki.com/myndir/2008/08/DSC_5161.html

Það er eitthvað skemmtilega súrt við það að mynd af Matthíasi Ágeirssyni sé i miðri bloggfærslu húsmóður um saltkjöt og baunir og vindmælinn undir Hafnarfjalli. Auk þess sem að þetta er statement af þinni hálfu. ;)

Matti - 12/10/09 11:29 #

Góð hugmynd. Ég var búinn að skipta um mynd en kannski geri ég það aftur og set fésið á mér inn.

Annars ætti ég að fá friðarverðlaun Nóbels fyrir þá manngæsku að setja þetta í staðin:

Fésið fer inn seinna í dag nema Anna verði búin að laga þetta :-)

Arnar - 12/10/09 11:32 #

Þú ert alltof góður Matti, hvar er þessi níðingur sem allir (prestar) eru að tala um?

Matti - 12/10/09 11:52 #

Ég þykist vera vondur en er svo bara góður!

Matti - 12/10/09 13:59 #

Kominn tími á að fésið á mér færi inn.

-DJ- - 12/10/09 14:01 #

Snilld :)

Jóhannes Proppé - 12/10/09 14:09 #

Vá hvað það væri hægt að snúa þessu upp í mikla vitleysu...

Einar K. - 12/10/09 14:23 #

Hahahaha! Þetta er glæsilegt. :)

-DJ- - 12/10/09 14:28 #

Nú er gamanið búið sýnist mér.

Anna Einarsdóttir - 12/10/09 14:39 #

Var þér svolítið sárt um kjötsúpumyndina ? :-) Verð að viðurkenna að það er svolítið óþægilegt að fá svona andlit á skjáinn. Takk samt, fyrir að hafa það ekki neitt verra.

-DJ- - 12/10/09 14:41 #

Svo hefur þú sjálf sett inn aðra mynd af Matta eða hvað Anna? Grunaði alltaf að hann reykti í laumi.

Anna Einarsdóttir - 12/10/09 14:45 #

Já, mér fannst þessi betri.

Matti - 12/10/09 15:31 #

Oh, þetta var svo gaman :-)

Æi, mér finnst bara eðlilegt að fólk vísi a.m.k. á uppruna myndar þegar það fær þær lánaðar á netinu ;-)

Anna Einarsdóttir - 12/10/09 15:47 #

Rétt hjá þér.

Biðst afsökunar og læri af reynslunni.

GH - 12/10/09 19:38 #

Hahahaha, þetta er hrikalega fyndið! Ég man vel eftir þessari saltkjöts-og-baunamynd hjá þér á sínum tíma og finnst hún ógurlega falleg og girnileg, skil svo sem "þjófinn".

hildigunnur - 13/10/09 00:02 #

hahaha, þetta er tóm snilld. Made my day :D

Rebekka - 13/10/09 05:55 #

Mig langar alveg hrikalega mikið í saltkjöt og baunir núna...

Matti - 13/10/09 14:37 #

"Ég stal" skrifar Anna Einars full iðrunar. Hér með hlýtur hún uppreist æru.

Kalli - 15/10/09 11:03 #

Hah, „það er ljótt að stela myndum af tölvuforritara“ :D

En það er þá væntanlega OK að stela frá varnarlausum eða ef það fréttist ekki? ;)

Jájá, ég er smá bitur yfir því að fólk geti ekki drullast til að geta höfundar og tengja til baka.