Örvitinn

Pestin komin

Jæja, þá er pestin væntanlega komin á þetta heimili. Inga María liggur sofandi í rúminu mínu, var með 39° hita rétt áðan. Kvartaði undan hausverk fyrr í dag og verkjum í augum þegar hún leit niður. Ég tók út hálsbólgu um daginn, er að vona að það hafi verið væg flensa.

fjölskyldan
Athugasemdir

Eva Mjöll - 18/10/09 21:58 #

Æ vonandi gengur þetta fljótt yfir hjá henni. Við erum komin með pestina til okkar, Ásta og ég búnar en Daníel er að klára. Sendum allavega batnaðarkveðjur héðan úr Kjósinni.

Matti - 19/10/09 08:35 #

Já, þetta gengur vonandi vel.

Nú er hún með smá hausverk og magapínu - auk hitans.

Matti - 19/10/09 09:24 #

Inga María sefur í sófanum í sjónvarpsstofunni. Áðan greip hún fötuna í smá stund, var greinilega óglatt, en náði svo að sofna. Hefur ekkert borða en drukkið smá Sprite. Búin að tyggja eina Paratabs.