Örvitinn

Sandkorn stamar

Sandkorn DV fetar í fótspor nestorsins og skrifar sömu færslurnar oftar en einu sinni, væntanlega til að auka aðsóknina. Ég þarf að fara að nota þetta trix! Mér finnst ég sjá þetta dálítið reglulega hjá sumum vinsælum "bloggurum". Sama færslan birt oft eða jafnvel bara uppfærð í rss skrá svo hún komi aftur eins og ný í yfirlitum (t.d. blogggáttinni).

Var ekki nóg að segja okkur einu sinni að tendasonur biskups væri að koma honum í bobba, var virkilega ástæða til að endurtaka það? Reyndar er út í hött að ég mótmæli því að sem oftast sé sagt frá biskup og tengdasyni hans :-)

fjölmiðlar