Örvitinn

Humarsúpa

Ég eldaði humarsúpu í hádeginu í tilefni dagsins.

Byrjaði á því að útbúa soð í gærkvöldi. Er með humarskeljar í frysti, tók hluta þeirra úr frosti í gær. Humarsúpa Hakkaði skeljarnar og brúnaði vel í smjöri og olíu. Tók þær til hliðar meðan ég steikti gróft skorinn lauk, hvítlauk, sellerí og gulrætur. Bætti skeljum aftur og setti smá hvítvín út í, sauð niður. Setti svo um tvo lítra af vatni ásamt lárviðarlaufum og lét þetta sjóða niður við frekar vægan hita í rúma tvo klukkutíma. Sigtaði soðið, kældi og geymdi í ísskáp í nótt.

Í morgun saxaði ég svo lauk, gulrætur, sellerí og chili smátt og brúnaði í stórum potti. Bætti soðinu saman við. Skellti hvítvíni, örlitlu brandí, rúmum líter af vatni, tómatþykkni, hálfum líter af rjóma, heilum chili (skar ekki niður heldur sauð bara heilan), lítilli dós af kókosmjólk, salt, pipar, saxaðri basiliku og bergmyntu (oregano), skellti stilkunum af bergmyntu út í pottinn líka og lét malla. Í lokin sauð ég humarinn í súpunni í smá tíma, fiskaði hann aftur úr og setti til hliðar. Bætti humrinum í skálarnar þegar ég bar súpuna fram. Þetta var helvíti gott þó ég segi sjálfur frá.

Bar með þessu fram heimabakað focaccia brauð með beikonkurli, parmesan osti og fersku kryddi.

Byggði þetta á humarsósu Nönnu og las einnig um húmarsúpu Ragnars Freys. Annars lék ég þetta bara af fingrum fram.

matur
Athugasemdir

Sirrý - 01/11/09 17:33 #

Innilega til hamingju með konuna. skilaðu kveðju til hennar.