Örvitinn

Klaufi, veikindi og afmælisbarn

Inga MaríaKolla er veik, var komin með hita í gærkvöldi, hefur kvartað undan kverkaskít síðustu daga. Gyða byrjar daginn heima, ég tek vaktina eftir hádegi.

Gyða ætlaði að skutla Ingu Maríu í skólann í morgun þar sem göngufélagarnir afboðuðu sig. Það gekk ekki þar sem ég er með bíllyklana hennar í vasanum. Gáfaður!

Inga María var vakin með söng í morgun. Fór í "The dog ate my homework" peysunni í skólann og var að bisast við að setja á sig hálsmen þegar ég smellti af henni mynd í morgun.

Ég setti nýja skrifborðsstólinn saman í gærkvöldi. Í dag eða kvöld þarf ég að koma skrifborðinu í rétt form. Inga María kom foreldrum sínum skemmtilega á óvart þegar hún pantaði skrifborð og stól í afmælisgjöf.

fjölskyldan
Athugasemdir

Sirry - 16/11/09 22:55 #

Til hamingju með stóru stelpuna, Vona að Kolla verði fljót að jafna sig. Elísa var lasin í gærkvöldi og ældi tvisvar en var hin hressasta í dag.

Sirrý