Örvitinn

Skrifborðið

Skrifborðið hennar Ingu MaríuInga María er afskaplega ánægð með skrifborðið sitt. Er búin að koma sér vel fyrir, græjurnar komnar í samband og hún situr og dundar sér.

Hún dró gluggatjöldin fyrir svo lampinn og blómaljósin (sem hún er búin að slökkva á) fengju að njóta sín.

Ég held hún eigi eftir að njóta þess að dunda sér í herberginu. Nú ætlar hún t.d. að púsla og næst á dagskrá er að mála.

fjölskyldan