Örvitinn

Rógur

Hvað veldur því að fólk virðist eiga auðvelt með að skrifa róg um Vantrú? Sama fólk myndi eflaust lögsækja mig ef ég skrifaði sambærilegan óhróður um það eða fyrirtæki þeirra.

Þannig virðast sumir eiga afar auðvelt með að bera fasisma eða ofbeldi upp á félagið og ef við svörum er það bara staðfesting á ásökunum í undarlegum hugarheimi þessa fólks.

Þetta er stundum dálítið pirrandi.

Sérstaklega vegna þess að það er af nógu að taka í efnistökum á Vantrú og vel hægt að ásaka okkur um allan fjandann án þess að ljúga beinlínis um félagið og meðlimi þess. Jújú, stundum erum við sennilega dónaleg og allt það. Æi.

Ýmislegt
Athugasemdir

hildigunnur - 08/12/09 13:56 #

hver var nú að ljúga og rægja?