Örvitinn

Morgunstund

Ég vakti stelpurnar klukkan níu, nú eru þær uppi að klæða sig. Vöknuðu óskaplega kátar. Ég var kominn á fætur klukkutíma fyrr, dólaði mér við að lesa blöðin og netið.

Á morgun hefst skólinn (í dag er skipulagsdagur) og þær þurfa að vakna klukkan hálf átta. Sem þýðir að ég þarf líka að vakna hálf átta. Úff.

Skutla þeim í Garðabæ þegar þær eru tilbúnar og kem mér í vinnuna.

dagbók