Örvitinn

Afmælisboð

Í dag höldum við upp á tíu ára afmæli Kollu. Eigum von á nokkrum stelpum klukkan eitt og svo ættingjum klukkan fjögur. Í fyrsta skipti ákvað Kolla að bjóða færri, hingað til hefur allur bekkurinn eða allar stelpurnar mætt. Okkur finnst þetta ágæt þróun.

Verðum með pítsur eins og alltaf en ætlum að láta stelpurnar setja áleggið á sjálfar, ein lítil pítsa á hverja. Ég held þær hafi gaman að því.

Svo fáum við vonandi þokkalegt næði til að undirbúa fullorðinsafmælið meðan stelpurnar dunda sér.

dagbók