Örvitinn

Lætin í nótt

Ég svaf ekkert sérlega vel í nótt útaf látum í veðri. Kolla átti líka erfitt með að sofna alveg við gluggann og Inga María kom upp í. Ég sofnaði seint og vaknaði um miðja nótt, rölti um húsið og athugaði ástandið. Allt í fínu, enginn leki og ekkert hafði fokið í garðinum.

Er hræddur um að ég verði afskaplega syfjaður í dag.

Bloggaði ekki í nótt, skrifaði síðustu færslu fram í tímann.

dagbók
Athugasemdir

Bragi Skaftason - 25/01/10 09:41 #

http://www.whyamisick.org/META-Medicine.html

Ég hitti einn forvígismanna þessa rugls um helgina. Það er víst fullt af fólki búið að vera á "námskeiði" hjá honum hér á landi og jedúddamía þetta er mesta rugl sem ég hef séð og ég hef séð mikið af rugli á minni ævi.