Mér finnst þetta ravioli verðskulda sér færslu!
Ég studdist við uppskrift sem ég fann á vefnum en fór ekki nákvæmlega eftir henni. Finn þetta vídeó ekki aftur nú þegar ég ætlaði að vísa á það.
Hvaða vitleysa, hér er það:
Annars samanstóð fyllingin af hvítlauk, lauk, fennel, humarsoði, humar, basil og ostum.
Var ekki alveg með það á hreinu hvað ravioli ætti að sjóða lengi, eftir eina mínútu var allt farið að fljóta en ég gaf því 2-3 í pottinum. Var alls ekki ofsoðið.
Þarf að prófa ýmsar fyllingar, bæði kjöt-, spínat og osta. Þetta er líka tilvalinn matur til að elda með stelpunum. Þær geta dundað sér við að setja fyllinguna á pastablöðin og móta ravioli með glasi.
Þetta mun ég prófa við tækifæri.
Mundu bara að nota nóg af eggjum :-)
|
www.flickr.com
|