Örvitinn

Stolinn Polo á stæðinu

Vísir segir að lýst sé eftir stolnum Polo.

Þessi mynd var tekin á bílastæðinu fyrir aftan Trackwell fyrir nokkrum mínútum. Þess má geta að Trackwell býður meðal annars upp á flotastjórnun þar sem hægt er að fylgjast með staðsetningu ökutækja. Við erum semsagt sérfræðingar í þessu!

stolinn_polo.jpg

Við létum lögguna og Heklu vita.

Uppfært: Kl. 12:20 sóttu Heklumenn bílinn.

Ýmislegt
Athugasemdir

Óli Gneisti - 24/02/10 12:23 #

Við létum lögguna og Heklu vita. Kl. 12:20 sóttu Heklumenn bílinn. 24.02.2010 12:12 Ýmislegt

Skyggnigáfa þín fer vaxandi.

Matti - 24/02/10 12:25 #

Ég uppfærði færsluna þegar þeir fóru með bílinn. Það er stutt milli Heklu og Trackwell :-)

Eggert - 24/02/10 12:55 #

Er þessi flotastjórnun s.s. byggð á skyggnigáfu þinni? Ég fæ ekki betur séð.

Matti - 24/02/10 14:05 #

Voðalega eruð þið leiðinlegir við mig :-)

Kalli - 24/02/10 15:20 #

Matti að lenda í einelti? What goes around comes around, eh?

Matti - 24/02/10 17:14 #

Djöfull finnst mér merkilegasta bloggfærsla dagsins á öllu Íslandi fá litla athygli :-( (Nú græt ég inni í mér)