Örvitinn

Bústaðahelgi

Skruppum í bústað um helgina. Aukum úr bænum á föstudag í hellidembu og þoku. Höfðum það ósköp gott, gerðum mest lítið, fórum í pottinn, spiliuðum og horfðum á sjónvarpið. Skruppum í afmælisboð í Kjós á laugardag.

Elduðum ekkert í bústað um helgina sem telst óvenjulegt. Komum við á Subway á leiðinni úr bænum, borðuðum vel í afmælisboðinu og fengum okkur morgunkorn eða ristað brauð þess á milli.

Ég las dálítið eftir Ehrman, stórmagnað efni.

dagbók