Örvitinn

Siðuð þjóðfélög

Í siðuðu þjóðfélagi væru Axel Karl Gíslason og Viktor Már Axelsson ekkert vandamál. Hefðu annað hvort lent á höggstokknum eða í lífstíðarfangelsi og væru þar með úr sögunni. #

Siðuð þjóðfélög höggva víst hausinn af glæpamönnum. Jónas er snarbilaður.

Að sjálfsögðu þarf að taka þessa tvo menn úr umferð, en við drepum þá ekki. Ekki í siðuðu þjóðfélagi.

pólitík
Athugasemdir

Óli Gneisti - 06/05/10 10:17 #

Eins gott að hann les ekki bloggið þitt.

Tryggvi R. Jónsson - 06/05/10 10:32 #

Þú ert greinilega ekki að ná skilningi á hinum kristilega kærleik sem er grunnurinn að öllum siðuðum þjóðfélögum Matti :)

Matti - 06/05/10 11:11 #

Já, ég er augljóslega ekki að fatta þetta :-)

Svo tel ég sjálfum mér trú um að Jónas lesi bloggið mitt (eða tengdaföður míns, fer eftir því hvernig á það er litið) oft á dag!

Helgi Briem - 06/05/10 12:17 #

Menn fara offari í svona refsigleðipistlum öðru hverju.

Fyrirliggjandi gögn benda ekki til þess að refsiglöð þjóðfélög njóti meiri friðar eða öryggis en þessi sem sýna meiri linkind.

Ameríkanar eru mjög refsiglaðir, enda sýnist manni þeir eyða öllu sínu fé í fangelsi og lögfræðinga og eru síður en svo lausir við glæpi og ofbeldi.