Örvitinn

Sigurjón M. Egilsson og Hreiðar Már

Sigurjón M. Egilsson ætlaði að blogga eitthvað um sig og Hreiðar Má en hefur hætt við, ég elti vísun frá blogggáttinni en greip í tómt. Hvað með Sigurjón og Hreiðar Má? Hvað, allt upp á borðið, engin leyndarmál - við þurfum að vita þetta?

sme_og_hreidar_mar.png

Og þó, fólk má hætta við að skrifa bloggfærslur. Það þarf bara að passa að eyða færslunni áður en blogggátinn og aðrir bottar mæta á svæðið (semsagt eiginlega strax).

Ýmislegt
Athugasemdir

Sigurjón M. Egilsson - 06/05/10 19:02 #

Sæll, þetta var um fund í Kaupþingi þar sem ég og fleiri blaðamenn hlustuðum á forráðamenn Kaupþings tala um eigið ágæti. Hætti við þar sem ég nefndi menn sem voru á fundinum, en fannst eftir á að ég eigi ekkert með að nefna nöfn þeirra. Segi kannski frá fundinum seinna. Hef reyndar gert það á Sprengisandi á Bylgjunni. kv -sme