Örvitinn

Nýir og glæsilegir gervigrasskór

nike_gervigrasskor.jpgÞað eru víst eitthvað skiptar skoðanir um það hvort nýju gervigrasskórnir mínir eru glæsilegir eða ekki. Af þeim skóm sem ég prófaði í Útilíf voru þeir þægilegastir og ég fann par sem smellpassar, voru þröngir í byrjun hádegisboltans en góðir í lokin. Það er 20% afsláttur af fótboltavörum í Útilíf í dag en svo frétti ég að Jói útherji er að selja skóna á sama verði og þeir fást á með afslættinum í Útilíf, kosta 11.990.- hjá Jóa, 11.992.- með afslætti í Útilíf.

Skórnir reyndust vel í dag þó ég hafi reyndar verið í tapliðinu en það er bara vegna þess að Steini og Palli eru svo stórkostlegir í fótbolta, það er ekkert hægt að ráða við svoleiðis menn. Fínt að spyrna í nýju skónum en ég kenni þeim að sjálfsögðu um þau skipti þegar ég missti boltann, þarf að læra aðeins betur á þá.

Þess má geta að við spiluðum í hellidembu í hádeginu og það var stórfínt.

boltinn
Athugasemdir

Þórhallur Helgason - 19/05/10 17:45 #

Fátt betra en góður bolti í góðri rigningu á góðu (gervi)grasi í góðra vina hópi... :D

Þórhallur Helgason - 19/05/10 17:45 #

...og á góðum skóm, gleymdi því, auðvitað... ;)

Carlos - 19/05/10 19:36 #

Þeir eru eitthvað svo ... grænir ... alveg eins og geðslag mitt akkúrat núna, þegar ég horfi á þá.

Matti - 19/05/10 19:42 #

Þeir eru ógeðslega grænir. Yngsta dóttir mín gaf þeim góða einkunn, sagði orðrétt "NETT" en sú elsta var ekki hrifin og þótti þeir skelfilegir.

Þeir eru eiginlega alveg skelfilegir en þeir smellpassa og eru þæginlegir.

Arngrímur - 19/05/10 21:22 #

Fyrir mitt leyti þykja mér engir íþróttaskór fallegir, enda þurfa þeir ekki að vera það :)

Sirry - 20/05/10 00:47 #

Eins og ég hef oft sagt áður er best að búa og versla í Hafnarfirði, fór í musik og sport í dag og þar voru þeir að selja þessa líka fínu og flottu gervigrasskó á 7900 kall. já það er gott og ódýrt að búa í Hafnarfirði. en annars er ég viss um að þú átt eftir að brillera á vellinum í sumar í þessum líka glæsilegu skóm. en verð að segja með musik og sport sá adidas skó ég ég skoðaði fyrr í betur í intersport á litlar 18900 kr á 14900 munaði 4000 kalli.