Örvitinn

Múhameð spámaður

Ég þori náttúrulega ekkert að teikna Múhameð því þá er ég bara að spila á viðbrögð öfgamúslima sem um leið eru að spila á það að ég sé að teikna mynd af Múhameð. Ég hræðist endurkvæm föll. Svo gæti ég móðgað einhvern fyrir hönd múslima. Annars held ég að allt sé með einhverjum hætti vatn á myllu öfgamúslima.

Í staðin fyrir að teikna spámanninn ákvað ég að gerast múslimi í einn dag. Allahu Akbar.

Ég sem Múhameð

íslam
Athugasemdir

Mummi - 20/05/10 15:48 #

Svakalegur skeggvöxtur er þetta! Ég þyrfti ábyggilega að gerast múslimi í 60 daga til að ná þessu!

Matti - 20/05/10 16:43 #

Þeir sem tilbiðja á Allah (mikill er máttur hans) safna skeggi með undraverðum hraða.

Stebbi - 21/05/10 07:40 #

Er ekki daudasök skv. kóraninum ad ganga af trúnni þegar maður hefur á annað borð gerst múslimi (sem betur fer almennt ekki framfylgt, ekki einu sinni í Saudi Arabíu held ég)?

Er það ekki formlega séð verra að gerast múslimi en afneita svo islam eftir einn dag, en að teikna mynd af spámanninum?

Samt hlakka ég til ad sjá þig í múnderingu biskups, páfa, búddistamunks eða einhvers annars. Skora á þig að prófa ýmis trúarbrögð fyrst þú ert byrjaður. Til að verða grísk-orþodox prestur þarftu t.d. bara að skipta um hatt frá myndinni hér að ofan.

Matti - 21/05/10 07:49 #

Það er rétt hjá þér, ég held ég hafi komið mér í klípu.

Ég verð að prófa aðrar múnderingar :-)

Freyr - 21/05/10 13:00 #

Þú hefur eflaust séð Ted fyrirlesturinn með gaurinn sem prófaði að gera kristinn bókstafstrúarmaður í heilt ár. Það er bara rugl. Einn dagur ætti að vera nóg.