Örvitinn

Bestu viðbrögðin við Múhameðsteikningum

Þessi mynd er besta svarið. Að sjálfsögðu er fullt af múslimum í heiminum sem kippa sér ekkert við það þó eitthvað fólk teikni myndir af Múhameð spámanni. Þeir sem fríka út fyrir hönd múslima gleyma því stundum. Reyndar held ég að þeir sem bregðast verst við séu annarar trúar og vilji nota tækifærið til að skjóta á þá sem gagnrýna þeirra trúarbrögð.

Sjálfur verð ég algjörlega hoppandi bullandi brjálaður ef einhver gerir grín að trúleysi eða Liverpool - eins og allir vita.

(via reddit)

íslam