Örvitinn

Nú einnig með varaborgarfulltrúum

Í dag birti ég kort af búsetu borgarfulltrúa sem flestir eiga heima nálægt miðbænum. Ég dundaði mér núna við að setja bæta varaborgarfulltrúum inn á myndina, punktarnir þeirra eru aðeins minni en borgarfulltrúanna Það breytir ótrúlega litlu þó varaborgarfulltrúum sé bætt við, einn býr í Grafarvogi. Er að spá í að skella saman einni mynd af miðbænum.

heimilii_borgarfulltrua_og_varamanna_litil.png

Uppfært - Miðbærinn.

heimilii_borgarfulltrua_og_varamanna_midbaer.png

Þar með segi ég þessu lokið :-)

pólitík
Athugasemdir

Óli Gneisti - 31/05/10 22:45 #

Nú er ég náttúrulega búinn að vera í þessu hjá VG í rétt hálft ár og ég finn alveg hvað það munar miklu að búa í Breiðholti. Ég get rölt á alla mína fundi í hverfisráði en þar sem ég er hvorki að vinna né í námi niður í bæ þá missi ég mikið til af fundum hjá borgarmálahóp VG. Þannig held ég að verði hálfsjálfvalið fólk þarna í nágrenninu sem getur tekið virkan þátt í starfi flokkanna. Það skýrir þó ekki dreifinguna hjá Besta flokknum.

Matti - 31/05/10 23:35 #

Bætti miðbænum við, Besti er fjólublár í það skipti.

Arngrímur - 01/06/10 12:45 #

Er bara alltaf verið að stela frá þér?

http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/2-af-3-borgarfulltruum-bua-i-midbaenum-ekki-ahyggjur-i-odrum-hverfum-_-alveg-strax

Matti - 01/06/10 13:40 #

Pressan var á undan :-) Ég lagði aftur á móti aðeins meiri vinnu í þetta hjá mér, þeir skoða ekki varamenn.