Örvitinn

James Randi í kvöld

Ég minni á fyrirlestur James Randi í kvöld. Háskólatorg, salur 105 klukkan 20-21, aðgangseyrir eitt þúsund krónur, greiðist við innganginn. Hraðbanki á svæðinu.

Ekki missa af þessu nema þið hafið rosalega góða afsökun eins og ég.

efahyggja
Athugasemdir

Helgi Þór - 24/06/10 23:25 #

Ótrúlega flottur fyrirlestur og fær fólk heldur betur til að velta hlutunum fyrir sér!

Þórhallur "Laddi" Helgason - 25/06/10 08:38 #

Þetta var frábær upplifun sem ég hefði alls ekki viljað missa af. Finn eiginlega til með Matta greyinu að hafa ekki komist, Randi var magnaður að vanda... :)

Matti - 26/06/10 20:54 #

Ég finn til með sjálfum mér :-)

Valdimar - 27/06/10 01:18 #

Mikið var hann ótrúlega sprækur! Ég bjóst við því að hann myndi bara halda sig bakvið ræðupúltið, en hann tók meira að segja nokkur dansspor á gólfplássinu þar við hliðina á.