Kíktum í bústaðinn um helgina, ákváðum að skreppa á föstudag. Áttum von á rigningu alla helgina en fengum afskaplega gott veður.
Eva, Einar, Ásta og Brynjar komu á laugardag og gistu hjá okkur. Grilluðum læri og með því og höfðum það afskaplega gott. Spiluðum dálítið og skelltum okkur í pottinn.
Stelpurnar voru óskaplega duglegar við að leika sér, svo uppteknar við leikinn að þær heimtuðu að fá að vera eftir meðan við skutumst í Borgarnes á laugardag. Þegar Ásta mætti seinna um daginn smullu þær saman og léku sér óskaplega vel saman allar þrjár. Brynjar var í góðu stuði líka og skoðaði allt vel og vandlega.
Takk kærlega fyrir okkur, þetta var frábært.
|
www.flickr.com
|