Örvitinn

Mogginn lokar á Loft

Ég verð að hrósa moggabloggsfólki fyrir að hafa loks lokað bloggsíðu Lofts Altice Þorsteinssonar.

Skondið að áður hafði hann gantast með að myrða fólk en það sem varð honum að falli var tal um kynvillinga, þ.e.a.s. hann kallaði forsætisráðherra og stjórnmálafræðing því nafni.

vefmál
Athugasemdir

Egill Helgason - 26/08/10 22:05 #

Já Loftur er skrautlegur. Hann sagðist ætla að hengja mig ljósastaur.

Þórður Ingvarsson - 27/08/10 12:07 #

Það er frekar vandræðalegt að sjá Jón Val röfla um ritskoðun. Eiginlega mjög vandræðalegt.

Sindri G - 27/08/10 12:31 #

Mogginn þyrfti þá að loka 1981 þýðingunni af Biblíunni, ef hún væri með moggablogg.

Þórður Ingvarsson - 27/08/10 14:37 #

Það var eiginlega dáldið fyndið djók. Ha, Sindri? Viltu ekki skella biblíunni inná moggabloggið?