Örvitinn

Er séra Baldur fimm ára?

Ég hef miklu þroskaðri guðsmynd en þið. #

Skrítið þar sem ég hef enga guðsmynd, ég trúi ekki að gvuð sé til yfir höfuð.

kristni
Athugasemdir

Óli Gneisti - 02/09/10 11:54 #

Alveg merkilegt. Maður spyr einfaldra spurninga og fær bara skæting á móti.

Matti - 02/09/10 12:45 #

Já, hvað ætli séra Baldur og kollegar hans myndu segja ef við svöruðum þeim alltaf með svipuðum hætti?

Óli Gneisti - 02/09/10 12:48 #

Áttu við: "Ég trúi ekki á guð af því að ég er þroskaðri en þú."? Þeir láta merkilegt nokk alltaf eins og við tölum svona.

Pétur - 02/09/10 13:11 #

Ég ákvað einmitt að svara honum með svipuðum hætti (má samt skammast mín fyrir að hafa klúðrað htmlinu).

Einar Jón - 04/09/10 06:26 #

Vá.

Þetta er á sama þroskastigi og "Guðinn minn getur lamið guðinn þinn".

Séra Baldur Kristjánsson ríkiskirkjuprestur - 06/09/10 19:05 #

Skelfing eruð þið humorslausir. Þið eruð ekkert skárri en sannir helgislepjumenn! Bkv. Baldur

Matti - 06/09/10 19:24 #

Æi hoppaðu upp í rassgatið á þér :-) Síðan hvenær hefur þú haft húmor fyrir sjálfum þér eða kirkjunni þinni?

Ég minni á þessi orð þín og þessi orð kollega þíns.

Staðreyndin er sú að ég og aðrir sem hér tjá sig hafa alveg nóg af húmor. Þessi ásökun þín er enn ein tilraunin til að svipa okkur mennskunni, gera okkur að úrhrökum sem í lagi er að níða.

Þannig virkar þessi ómerkilega pólitík þín og kirkjunnar þinnar.

Ekki saka mig um húmorsleysi, þú þekkir mig ekki rassgat.

Af hverju í andskotanum þorir þú ekki að rökræða við okkur trúleysingja? Standa við skoðanir þínar, gagnrýna málefnalega það sem þér þykir rangt í málflutningi okkar. Af hverju þorir þú ekki að setja fram almennileg rök fyrir afstöðu þinni?

Af hverju ferðu alltaf með þetta út í svona dylgjur og óhróður? Er það vegna þess að þú lítur niður á okkur trúleysingjana sem vogum okkur að gagnrýna þið og þitt heilaga djobb? Er ekki hentugt að kenna okkur um þegar skíturinn ykkar kemur upp á yfirborðið, þegar ykkar syndir eru öllum sýnilegar. Er ekki hrikalega hentugt að geta þá bara bent á litlu ljótu trúleysingjana og vonað að fólk horfi ekki á puttann.

ps. Ég merkti athugasemd þína örlítið betur. Veit þú hefur hellings húmor fyrir því.