Örvitinn

Hjólatúr dagsins


Skoðið bæjarferðina á stærra korti

Ég, Gyða, Kolla og Inga María skelltum okkur í smá hjólatúr í dag. Fórum niður í Elliðaárdal, gegnum Fossvogsdal og ætluðum að stoppa í kaffi við Nauthólsvík en þá var verið að loka þegar við mættum. Héldum því áfram og enduðum á Austurvelli þar sem við sáum formann Framsóknarflokksins og frú stíga úr Dómkirkjunni, glænýgift og kát (gröð og rík?)

Sigmundur Davíð og eiginkona hans ganga úr Dómkirkjunni

Tókum strætó heim. Það er reyndar ekkert sérlega hentugt að fara með fjögur hjól í strætó, ég þurfti að standa allan tímann og halda við hjólin. Var orðinn hálf bílveikur þegar tólfan skilaði okkur út við Seljabraut.

dagbók