Örvitinn

Níu ára

Inga María

Inga María á afmæli í dag og er orðin níu ára. Ég uppfærði myndaannálinn hennar í vikunni. Þetta gerðist semsagt fyrir níu árum. Magnað hvað tíminn líður hratt. Áður en ég veit af verða allar dætur mínar fullorðnar.

Hún er búin skiljanlega búin að vera ósköp spennt. Talaði mikið um það í gær að þetta væri í síðasta sinn sem við sætum til borðs með átta ára Ingu Maríu og í gærkvöldi kúrði ég í síðasta skipti hjá átta ára Ingu Maríu.

Rétt áður en Inga María fæddist fauk múrklæðning af gaflinum á húsinu okkar. Það var loks lagað í sumar. Þegar Inga María var í leikskóla gerði hún einu sinni teikningu af húsinu sínu með gati á hliðinni og talaði um að það væri "bilað". Nú er það ekki lengur bilað og hún orðin dálítið stór.

Förum á Hamborgarafabrikkuna í kvöld, Inga María pantaði það í síðustu heimsókn.

fjölskyldan