Örvitinn

Lögreglumenn fundu landaþef

Æi hættið þessu bulli. Við vitum að einhver kjaftaði, það er óþarfi að skálda upp sögur af þefvísum lögregluþjónum á rölti um borgina. Það gerist ekki í raunveruleikanum. Svona fréttir auka ekki trúverðugleika lögreglunnar.

Væntanlega er hafið "stríð" gegn landabruggi og á næstunni sjá eflaust fleiri fréttir af þefvísum lögreglumönnum og klaufalegum bruggurum.

Sjá einnig: Þefvísir lögreglumenn ramba á kannabis.

eiturlyf
Athugasemdir

Skorrdal - 27/01/11 10:46 #

Fólk trúir hvaða vitleysu sem er - sérstaklega ef hún kemur frá lögreglunni.