Kryppumenn eru alls ekki rasistar
Kryppumenn eru alls ekki rasistar. Seisei nei, alls ekki. Langt því frá.
Svartir eru ekki verra fólk en Íslendingar. En eiga þeir endilega rétt á að setjast hér að? Eða pólverjar? Ég er ekkert viss um það, við erum Íslendingar og við eigum okkar menningu og sögu. Ég var bara upp alinn á tíma þar sem Ísland var best í öllu, hreinasta vatnið, gáfaðasta fólkið, bestu rithöfundarnir, minnst spilling, mest réttlæti. #.
Kryppumenn eru alls ekki hálfvitar. Seisei nei, alls ekki.
Freyr - 10/02/11 12:31 #
Það er nú ekki mikil dylgja þegar það eru þrjár vísanir í umræðuefnið.
Snæbjörn - 10/02/11 12:50 #
Þeir eru bara ekki jafnforpokaðir og við hin, alltaf tilbúnir að ræða öll málefni svo umbúða- og fordómalaust, og þjóðernishyggja er þeim auðvitað á engan hátt óviðkomandi. Þetta heitir alls ekki að vera rasisti heldur að vera opinn og láta ekki smáborgaralega pólitíska rétthugsun stjórna gerðum sínum eða því sem maður hugsar. Æl.
Óli Gneisti - 10/02/11 20:24 #
Ja, dylgjurnar felast kannski frekar í því að segja að þeir sé sko ekki hálfvitar og rasistar. Fólk gæti haldið að þú sért með því að dylgja að þeir séu það í raun.
Matti - 10/02/11 23:04 #
Ég vona að enginn hafi skilið mig þannig að ég hafi verið að kalla kryppumenn hálfvita og rasista. Það eru þeir alls ekki. Langt því frá.
Þeir trúa bara á eðlufólkið og svo er þeim dálítið illa við að of margir svertingjar og Pólverjar búi á Íslandi. Maður þarf hvorki að vera hálfviti né rasisti þó maður hafi slíkar skoðanir.
María - 19/02/11 11:41 #
Hann er sko leiðtogi. Ætlar þú ekki að fara að prófa vídeobloggið? Ég ímynda mér djúpa rödd, þrumandi og landsföðurlega. Engir skrækir eða eftirhermur.