Samsung njósnar ekki um Kryppuna
Strákarnir á Kryppunni eru búnir að gefast upp á að hafa opið fyrir athugasemdir vegna þess vont fólk gerir athugasemdir við það sem þeir skrifa og andmælir því jafnvel.
Það er t.d. ekki hægt að gera athugasemd við færslu þeirra um njósnaforrit í Samsung tölvum. Fréttin byggði á bulli, vírusarvarnarforritið sem notað var leitaði einfaldlega að foldernum /sl/ undir /windows/ og taldi það til merkis um tiltekið njósnaforrit. Ekkert var athugað með innihaldið í foldernum.
Til Kryppuliða: Það er eitt að vera sturlaður samsæriskenningarnöttari með greinarvísitölu undir viðmiðunarmörkum. Að þora ekki að eiga samræður við fólk um það sem maður skrifar á síðuna er allt annað. Þið eruð gungur og aular.
Matti - 01/04/11 15:53 #
Arna G. skrifar athugasemd á Kryppu.
Fyrirlitning Vantrúarmanna á fötluðum kemur vel fram á síðu Matta í dag, þar kallar hann Björn “þroskaskertan”, til að niðurlægja hann, sem sýnir vel að þeir líta niður á fatlaða:
Í fyrsta lagi, þá kemur orðið "þroskaskertur" beint frá Kryppunni úr þeim texta sem ég vísa í.
Í öðru lagi, þá tekur Björn það fram á moggabloggsíðu sinni að hann sé "örlítið þroskaskertur".
Þannig að þetta segir nákvæmlega ekkert um nokkra fyrirlitningu á fötluðum.
Þórður Ingvarsson - 01/04/11 16:46 #
Hún stígur ekki beint í vitið hún Arna R. - mætti jafnvel halda að manneskjan sé ... tja ... þroskaskert sjálf.
Jón Frímann - 01/04/11 18:45 #
Það njósnar enginn um fólkið sem stendur á bak við kryppuna.
Þeir eru bara einfaldlega of einfaldir svo að það borgi sig að njósna um þá.