Örvitinn

Halldór Carlsson elskar mig ekki

tek þig örugglega á orðinu og tíni til dæmi um þetta hjá Vantrú þegar ég hef tíma, þau eru eiginlega öll frá Matthíasi Ásgeirssyni, sem er öfgamaður og hefur höndlað StóraSannleik einsog Gunnar í Krossinum.

Matthías væri afar hættulegur maður í valdastöðu. #

Ég bíð spenntur eftir því að Halldór finni tíma til að taka saman dæmi sem sýna hvað ég yrði hættulegur í valdastöðu. Það kæmi mér samt ekki á óvart ef dálítil bið verður eftir skýrslunni og sennilega mun innihaldið valda vonbrigðum. Einu get ég næstum lofað. Þegar vitnað verður í mig mun samhengið sennilega vanta

aðdáendur
Athugasemdir

Óli Gneisti - 02/08/11 23:18 #

Ætli hann hafi ekki verið að lesa Kryppuna.

btw. nýja kerfið heimtar að ég skrifi http:// fyrir framan urlið mitt. Sveiattan.

Matti - 02/08/11 23:37 #

Ég var að leita og ég sá að ég bað hann vinsamlega að hætta að "trolla" á Vantrú fyrir ekkert mjög löngu. Takið eftir viðbrögðum hans.

Þetta er óskaplega sniðugt html5 dæmi! Ég skal þó laga þetta, t.d. bæta http:// sjálfkrafa inn ef það vantar.

Einar - 03/08/11 13:14 #

Eru þeir enn að þessir jólasveinar á kryppunni.

Þeir hika ekki við að kommenta undir hinum og þessum nöfnum.

Sé að þeir setja inn athugasemd undir Kryppa.com, en mér finnst ekki ólíklegt að þeir séu þarna undir fleiri nöfnum.

Matti - 03/08/11 14:54 #

Þeir munu aldrei hætta. Ég ætla að reyna að láta eins og þeir séu ekki til.

EgillO - 04/08/11 16:53 #

Ahh, '[setjið inn nafn] elskar mig ekki' blogg. Þú hefur skrifað þau nokkur er það ekki? :)

Matti - 04/08/11 17:07 #

Jú, ég var að velta fyrir mér að búa til sérstakan flokk fyrir þessar færslur hér á blogginu :-)

Matti - 04/08/11 18:13 #

Og nú er kominn flokkur. Eflaust vantar fjölmargar færslur þarna inn.