Örvitinn

Jólastríð ríkiskirkjunnar

Oslóartréð

Síðustu ár hefur aðventan alltaf verið eins. Þjónar kirkjunnar delera um að vont fólk vilji leggja jólin niður, eyðileggja jólafríið (hefur einhver litið á dagatalið fyrir þessi jól?) og útrýma kærleikanum.

Það kemur mér því nákvæmlega ekkert á óvart að biskup deleri í útvarpsprédkun um að ástandið í Reykjavík sé eins og í Sovetríkjunum sálugu eða þegar séra Þórhallur Heimisson segir að það sé búið að banna fyrirgefningu í skólum (án gríns).

Þetta er bara hið árlega jólastríð ríkiskirkjunnar. Fastur liður í hátíðarhaldinu.

Munið þó að trúleysingjar sem tjá sig eru hinir einu sönnu öfgamenn og talibanar á Íslandi.

kristni
Athugasemdir

Matti - 22/12/11 11:05 #

Ég vissi að það yrði stríð.

Ég vissi bara ekki að það yrði svona.

Má til með að óska ríkiskirkjunni til hamingju. Hún toppaði allt í ár. Karl vildi augljóstlega hætta með látum.