Örvitinn

Rifinn vöðvi (nekt!)

læriÉg sagði frá því á Þorláksmessu að ég hefði tognað aftan í læri. Fann strax að þetta var slæm tognun.

Hef verið aumur síðan en í gærkvöldi tók ég fyrst eftir ansi massívum marblett aftan á hægra læri eins og sjá má á þessari símamynd.

Fékk lækni til að kíkja á þetta áðan. Ég hef rifið vöða og það hefur blætt, tekur tíma að leka niður. Ekkert við þessu að gera, vöðvinn verður bara eitthvað slakari eftir. Ég þarf að taka mér sex vikna pásu frá boltanum. Enginn fótbolti í janúar.

Svo þarf ég að létta mig og koma mér í form svo ég geti dröslast eitthvað í fótbolta nokkur ár í viðbót. Læknirinn sagði það reyndar ekki en hann hefur örugglega hugsað það.

heilsa