Örvitinn

Vinnurýmið

Básinn minn í dag. Tebolli, ferðatölva, vinnutölva, snjallsími og tvær spjaldtölvur. Allt í notkun á tímabili.

Vinnurýmið mitt

Fór með myndavélina út úr húsi til að viðra hana. Varð að taka mynd!

dagbók
Athugasemdir

Erlendur - 31/01/12 15:03 #

Núnú, hvað varstu eiginlega að gera sem olli því að þetta tæknidót var í notkun samtímis?

Matti - 31/01/12 15:05 #

Android app sem keyrir á símanum og spjaldtölvunum. Var ekki að ná að tengja Eclipse á vinnutölvunni við tabletið mitt til að deploya, notaði því ferðatölvuna í það.

pallih - 31/01/12 18:50 #

Voðalega er lítið drasl hjá þér. Þetta er ekki svona hjá mér.

Matti - 31/01/12 20:02 #

Draslið er fyrir aftan ferðatölvuna og fyrir aftan spjaldtölvurnar... en þetta er alveg þokkalega snyrtilegt hjá mér. Einhver samstarfsmaður minn hefur skilið eftir Pepsi Max flösku á borðinu mínu. Svei!

Erlendur - 31/01/12 21:00 #

Þannig að það er ekki risastór hrúga vinstra megin við þig ;)

Matti - 31/01/12 21:23 #

Neinei, kannski eitthvað smotterí.