Örvitinn

Lambaskankaafgangarisotto

Var með risotto í kvöldmatinn og notaði lambaskanka sem urðu afgangs síðasta laugardag. Tók glataðar símamyndir.

Laukur, hvítlaukur, sellerí, chili. Steikt úr smjöri og ólvíuolíu.

risotto

Arborio grjón, rauðvínsglas (og eitt í kokkana, sem skiptust á), lambakjöt, tómatpúrra, lambasoð.

risotto

Eins og alltaf þegar maður eldar risotto er soðinu bætt við ausu fyrir ausu og hrært í tæpar tuttugu mínútur. Smjör og parmesan osti bætt við í lokin. Borið fram með hvítlauksbrauði.

risotto.jpg

Þetta er kannski þriðjungur af því sem ég borðaði!

matur
Athugasemdir

pallih - 23/04/12 11:14 #

Useless note:

Ég las Landsbankaafgangarisotto

Laddi - 23/04/12 20:37 #

@pallih: Ég líka... ;)

Matti - 23/04/12 20:41 #

Eins og samsærissinnar geta sagt ykkur er ég líka laumu Landsbankamaður ;-) Hvað haldið þið að ég fái greitt fyrir Landsbankaáróður hér á blogginu mínu? Milljónir á milljónir ofan.