Örvitinn

Hatrammt ofstækisfólk

Fyrirtækið KOM almanatengsl ku hafa aðstoðað Geir H. Haarde í gær samkvæmt pressufrétt. Sama fyrirtæki hefur unnið fyrir ríkiskirkjuna.

Geir sagði að ofstækisfólk og hatursfullir einstaklingar skipi Alþingi.

Hverja höfum við séð tala um ofstækisfólk og hatursfulla einstaklinga? Jú, þetta hefur verið vinsælt stef hjá ríkiskirkjufólki, sérstaklega biskup, þegar rætt er um gagnrýnendur kirkjunnar.

Lítil ábending til KOM. Ræðið við umbjóðendur ykkar og sannfærið þá um að sleppa svona tali. Það virkar ekkert.

Ýmislegt
Athugasemdir

hildigunnur - 24/04/12 16:26 #

æi því miður held ég nefnilega einmitt að það virki of vel :(

Matti - 24/04/12 17:26 #

Já, kannski er KOM fólkið að vinna fyrir laununum sínum.

Bjarki - 26/04/12 09:00 #

Viðbrögð Geirs virka einhvern veginn úr karakter fyrir hann. Það útskýrir ýmislegt ef hann nýtur sömu PR-ráðlegginga og biskupinn.

Einar Jón - 27/04/12 14:47 #

Mér finnst Geir hafa verið ósköp samkvæmur sjálfum sér í þessu: Góðlegur og næs þegar allt gengur vel, en með yfirgang, kjaft og leiðindi við minnsta mótbyr.

Dæmi: Helgi Seljan og G. Pétur