Örvitinn

Verðlagslöggan - sperglar í Nettó

Keypti aspas í Nettó áðan. Fannst tilvalið að kaupa litlar dósir þar sem það verður oft töluverður afgangur og mér þykir leiðinlegt að henda mat. Þegar ég skoðaði verðið betur hætti ég við og keypti stóra dós.

spergill í dós

Hvaða rugl er þetta eiginlega? Hvernig getur litla dósin verið dýrari? Kílóverðið er rúmlega tvöfalt hærra?

kvabb