Örvitinn

Heppilegt stæði

Mynd af bíl

Ökumaður þessa bíls var rosalega heppinn og fékk laust stæði beint fyrir framan bílskúr í Bakkaseli. Eigandi bílskúrsins (ég) var ekki alveg jafn heppinn þegar hann kom heim úr helgarferð, fékk ekkert bílastæði og kemst ekki inn í bílskúrinn. Þurfti að leggja þvert fyrir framan bílinn, hann kemst þó burt með lagni. Ég nenni ekki að labba hringinn og leita að eigandanum.

Af hverju er fólk svona...?

kvabb
Athugasemdir

Matti - 02/06/13 20:30 #

Ég er svo aumingjagóður að ég færði bílinn minn áðan þegar ég sá að það hafði losnað stæði. Skrifaði skilaboð á miða og skyldi eftir undir rúðuþurrku.

Matti - 03/06/13 09:59 #

Bíllinn var enn fyrir framan bílskúrinn í morgun, búið að rigna á skilaboðin sem ég skyldi eftir á framrúðunni.

Matti - 03/06/13 19:23 #

Sólarhring síðar stóð bíllinn enn fyrir framan bílskúrinn. Þá loks hringdi ég í Vöku og ég lét fjarlægja hann.

spritti - 05/06/13 13:12 #

Sjitt hvað fólk er heimskt.