Örvitinn

Kvenlíkaminn og íslam

Skjáskot af Youtube Í myndbandi sem vísað er á af Facebook hópnum Opið Ísland vakti athygli mína að líkami konunnar var a.m.k. í tvígang blörraður eins og kynfæri eða lógó þrátt fyrir að konan væri í fötum. Þegar ég sá fyrri myndina fór ég að spá hvort það hefði sést eitthvað meira en brjóstaskora en seinna skjáskotið staðfesti að það er nóg að það móti fyrir kvenlíkama.

Skjáskot af Youtube Eins og fram kemur í myndbandinu þarf að verja karlmenn fyrir losta þeirra.

Það er áhugavert að skoða þessa hlið trúarbragða í ljósi (eðlilegu) kröfunnar um að ábyrgð af kynferðisbrotum sé færð af fórnarlömbum yfir á gerendur eins og meðal annars er bent á í Druslugöngunni. Krafan um að konur hylji líkama sinn til að forða mönnum frá losta og freistingu er afar öfgafull birtingarmynd hugmyndarinnar um að ábyrgðin sé fórnarlambanna.

feminismi íslam
Athugasemdir

Baldur - 06/08/13 11:46 #

Þarf ekki islam til!

Matti - 06/08/13 11:51 #

Það er alveg rétt og einnig er víst að margir aðhyllast íslam en telja ekki ástæðu til að hylja konur til að vernda karlmenn fyrir losta sínum.

En þetta tiltekna myndband fjallar um íslam og við eigum ekki að óttast að ræða svona hluti.

Jón Frímann - 06/08/13 12:24 #

Þetta kemur lítið á óvart, enda er litið á konur sem eign í ákveðnum gerðum af íslam (sögur þess efnis að íslam séu ein trúarbrögð eru uppspuni).

Þetta er hinsvegar ekkert betra í kristni, enda er grunnur þessara trúarbragða sá sami.




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)