Örvitinn

Jólin og allt það

Ég hef haft það afar gott um jólin þrátt fyrir árlegar tilraunir vissra aðila til að skemma þau. Verð að játa að ég skil ekki þá þráhyggju, finnst hún frekar sjúkleg. Er annars bara svona hress.

Matti

Búinn að borða kalkúna einu sinni á dag fjóra daga í röð, liggur við að ég sé orðinn þreyttur á þeim mat. Annað kvöld verður síðasta kalkúnamáltíðin þegar restin af kjötinu fer í pastarétt.

Ég er eiginlega ekkert búinn að lesa en ætla að sökkva mér í bækur og rembast við að gera ekki neitt.

Þyngdartölur rokka aðeins en það er lítið að marka þær. Ég hef samt verið þokkalega hógvær í öllu þessi jólin. Fyrir utan að rífast við klikkhausa á netinu, hef verið óþarflega duglegur við það.

dagbók
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)