Örvitinn

Eimskip elskar peninga, ekki börn

Eimskip þykir ekki vænt um börn, Eimskip þykir vænt um peninga.

Ef þessum fyrirtækjum er öryggi barnanna okkar svo ofarlega í huga, af hverju þurfa þá gjafir þeirra að vera merktar? Og af hverju nálgast þau ekki foreldrana beint, frekar en í gegnum skóla? #

Hvað er eiginlega í gangi á Fréttablaðinu? Herferð þeirra (það er ekki hægt að kalla þetta neitt annað) gegn viðmiðunarreglum um markaðsstarf og auglýsingar í skólum hefur verið áberandi. Hvaða hagsmuni er Fréttablaðið/Vísir eiginlega að verja?

Hér er ekkert fullyrt um starfsmenn Eimskips, þeim þykir örugglega flestum vænt um börn. En fyrirtækið hefur engan áhuga á þeim, það vill græða og þess vegna gefur það börnum merkta hjálma.

fjölmiðlar vísanir
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)