Örvitinn

Lexía síðustu daga

Ég er ekki kerfisstjóri og á að láta aðra sjá um að uppfæra fyrir mig - eða a.m.k. láta einhvern halda í höndina á mér meðan ég vesenast við það.

Ætlaði að uppfæra vefþjóninn á föstudag - það gekk vel til að byrja með en ég varð kokhraustur og endaði með algjörlega óstarfhæfa vél. Þurfti að setja stýrikerfið upp frá grunni. Átti öll gögn og glataði engu en það mun taka mig einhverja daga að fá alla virkni í gang. Þetta blogg og Vantrú virka að mestu leyti.

vefmál
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)