Örvitinn

Með Sleipni upp á Langjökul

Jöklabíllinn Sleipnir
Sleipnir er engin smásmíði.
Við vorum svo heppin að fá að fara í upp á Langjökul með þessu tryllitæki í gær. Ástvaldur Óskarsson bauð stórfjölskyldunni og við létum okkur ekki vanta.

Vorum einstaklega heppin með veður og útsýni. Það var þungbúið þegar við ókum að jökli en við ókum upp fyrir þokuna.

útsýni
Útsýnið var gott við fyrsta stopp.

Það var glampandi sól þar sem við stoppuðum til að grilla. Ég dundaði mér við að taka myndir af jökli og fólki, birtan var síbreytileg.

jökull
Jökullinn er magnaður.

Tókum eina hópmynd, ég held við höfum verið 45 í ferðinni en bíllinn tekur fimmtíu farþega.

Hópmynd
Allur hópurinn

Jóna Dóra tók mynd af okkur.

Fjölskyldan
Fjölskyldumynd

Sleipnir er alveg sérlega vandað farartæki og vel fer um farþega, útsýnið einstaklega gott.

Það fer vel um farþeta

dagbók
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)