Nokkir punktar um OnePlus7 pro
Fékk mér nýjan síma í gær eftir að hafa notað tæki með brotinn skjá í næstum ár. Hér er það sem ég skrifaði á twitter:
Fór í Tölvutek með Aukakrónur™, jólagjafakort frá vinnunni og kredidkortið og fékk mér OnePlus 7 pro.
Gamli LG G6 síminn búinn að vera í þessu standi í næstum ár. Ég er búinn að vera nokkuð rólegur!
Punktar:
- Ég finn hraðamuninn strax í venjulegu fikti. Átti ekki von á því.
- 90Hz skjárinn er eitthvað sem fólk þarf að upplifa, það flæðir allt betur!
- Þarf að læra á "gestures" en strax kominn með þokkalegt lag á því.
- Myndavélin að framan sem poppar upp er sniðug en spurning hvenær fólk fær leið á henni!
- fingrafaralesarinn undir skjánum virkar vel en mér finnst samt sniðugra að hafa slíkan aftan á símanum eða á hliðinni.
- Skjárinn er fáránlega flottur. Byrjaði í "vivid", er núna að prófa "natural" litastillingu.
- Wide angle linsan virkar! (það var skilyrði hjá mér í nýjum síma)
- gestures fyrir vasaljós og myndavél er töff!
- er búinn að setja upp flest forrit, alltaf vesen með Google authenticator sem flytur stillingar ekki með, en búinn!
Og ég á eftir að læra helling á símann
Athugasemdir