Örvitinn

Frelsið í að skrifa fyrir næstum engann!

Ég ætla að reyna að skrifa meira á þessu síðu en á hina svokölluðu samfélagsmiðla sem eru drasl! Tvær bloggfærslur í gær, ein komin í dag. Það er eitthvað.

Eitt af því sem ég hef gert er að skrifa færslur hér og deila þeim svo á samfélagsmiðlum en ég held ég sleppi því, a.m.k. í bili.

Það rambar enginn hingað inn, sárafáir eru með síðuna í rss-lesara. Ég er því næstum að skrifa bara fyrir sjálfan mig. Nenni ekki einu sinni að fylgjast með umferðinni, sem ég held að sé þroskamerki. Ef einhver slysast inn og hefur áhuga má fólk auðvitað deila.

Sjáum hvað setur.

dagbók
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)