Áhættuhegðun og ærandi fuglasöngur
Er það óþarfa áhættuhegðun að fara í ræktina? Hugsanlega, kannski ætti ég að halda mig heima. Það myndi reyndar örugglega leggjast dálítið þungt á mig andlega.
Af og til finnst mér ég vera slappur og hugsa þá hvort ég sé kominn með veiruna. Ég held að flestir hljóti að upplifa það sama.
Ég tók 5x5x60kg í overhead press (nema síðasta sett var 4x). Ég er ánægður með að bæta mig þar, er held ég aumari en ég ætti að vera í þessari æfingu, t.d. ef miðað er við bekkpressu. Annars var ég svo lengi að taka hnébeygjur og pressu að ég gerði lítið annað í dag.
Mikið finnst mér það undarleg árátta að spá í hvort sóttvarnalæknir hafi sagt eitthvað rétt eða rangt á upplýsingafundi fyrir þremur vikum í ljósi þess að það er fundur daglega og sífellt verið að upplýsa fólk um stöðuna. Að sjálfsögðu breytist það sem þau vita, það væri stórkostlegt kraftaverk ef hægt væri að spá fyrir um allt fyrirfram í þessu ástandi. En ég nenni ekki að tuða um þetta :-)